Godo var stofnað árið 2012 á Íslandi og er leiðandi fyrirtæki í þjónustu og hugbúnaðarlausnum fyrir ferðaþjónustu.
Við bjóðum upp á mikið úrval hugbúnaðarlausna og þjónustuleiða fyrir samstarfsaðila okkar, ásamt fjölda sérlausna.
Okkar markmið er að hjálpa til við að nútímavæða hótelreksturinn og auka á gesta upplifun.
Við þjónustum hátt í 2000 hótel og gististaði í 20 löndum ásamt hundruðum ferðaskrifstofa um allan heim.
Höfuðstöðvar Godo eru í Reykjavík og þróunarmiðstöðvar okkar eru í Skopje og Belgrad.
Okkar helsta markmið er að vera fremst á sviði nýsköpunar og tækni með framleiðslu á hágæða lausnum og þjónustu fyrir okkar samstarfsaðila.
Við erum staðráðin í að bæta rekstrarhagkvæmni og gesta upplifun með úrvals vörum og þjónustu.