{"id":1657,"date":"2025-09-30T09:41:37","date_gmt":"2025-09-30T09:41:37","guid":{"rendered":"https:\/\/godo.is\/arstidir-og-sveiflur-i-gistirekstri-5-leidir-til-ad-vidhalda-stodugleika-i-bokunum\/"},"modified":"2025-10-02T04:27:19","modified_gmt":"2025-10-02T04:27:19","slug":"arstidir-og-sveiflur-i-gistirekstri-5-leidir-til-ad-vidhalda-stodugleika-i-bokunum","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/godo.is\/is\/arstidir-og-sveiflur-i-gistirekstri-5-leidir-til-ad-vidhalda-stodugleika-i-bokunum\/","title":{"rendered":"\u00c1rst\u00ed\u00f0ir og sveiflur \u00ed gistirekstri: 5 lei\u00f0ir til a\u00f0 vi\u00f0halda st\u00f6\u00f0ugleika \u00ed b\u00f3kunum"},"content":{"rendered":"<p id=\"\">Fer\u00f0a\u00fej\u00f3nusta \u00e1 \u00cdslandi er \u00e1rst\u00ed\u00f0abundin og miklar breytingar m\u00e1 sj\u00e1 \u00e1 fj\u00f6lda b\u00f3kana, b\u00f3kunarhra\u00f0a, lengd dvalar og fleira \u00e1 milli sumars og veturs. \u00deessu fylgja miklar sveiflur \u00ed ver\u00f0um, starfsmannahaldi og \u00f6\u00f0ru.&nbsp;<\/p>\n<p id=\"\">\u00dea\u00f0 getur skipt sk\u00f6pum a\u00f0 \u00e1tta sig \u00e1 \u00feessum sveiflum \u00e1 marka\u00f0num, skilja \u00fe\u00e6r og greina hva\u00f0a \u00e1hrif \u00fe\u00e6r hafa \u00e1 \u00feinn gistista\u00f0. Me\u00f0 sl\u00edkar uppl\u00fdsingar a\u00f0 vopni er betur h\u00e6gt a\u00f0 st\u00fdra fl\u00e6\u00f0inu \u00e1 sveiflukenndum marka\u00f0i og vinna a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 halda st\u00f6\u00f0ugri innkomu yfir \u00e1ri\u00f0.&nbsp;<\/p>\n<p id=\"\">Yfir sumari\u00f0, \u00feegar f\u00f3lk flykkist a\u00f0 til \u00feess a\u00f0 upplifa mi\u00f0n\u00e6turs\u00f3lina og \u00edslenska n\u00e1tt\u00faru \u00ed fullum skr\u00fa\u00f0a, n\u00e1 gistista\u00f0ir h\u00e1marki \u00ed b\u00f3kunum og ver\u00f0i. Takturinn \u00ed fer\u00f0a\u00fej\u00f3nustu h\u00e6gist yfir veturinn en tikkar \u00e1fram \u00fear sem nor\u00f0urlj\u00f3s og a\u00f0rir heillandi eiginleikar landsins f\u00e1 a\u00f0 nj\u00f3ta s\u00edn. \u00c1 \u00feessum t\u00edma er minna um st\u00f3ra h\u00f3pa og meira um f\u00f3lk sem skipuleggur eigin fer\u00f0ir og s\u00e9r kosti \u00feess a\u00f0 heims\u00e6kja landi\u00f0 utan h\u00e1annat\u00edma.&nbsp;<\/p>\n<p id=\"\">Mikilv\u00e6gt er a\u00f0 hafa \u00f6ll \u00feessi atri\u00f0i \u00ed huga \u00feegar kemur a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 koma \u00e1 jafnv\u00e6gi \u00e1 rekstri gistista\u00f0a yfir allt \u00e1ri\u00f0 \u00ed heild.<\/p>\n<h2 id=\"\"><strong id=\"\">5 lei\u00f0ir til a\u00f0 vi\u00f0halda st\u00f6\u00f0ugleika \u00ed b\u00f3kunum:<\/strong><\/h2>\n<ol id=\"\">\n<li id=\"\"><strong id=\"\">Ver\u00f0st\u00fdring: <\/strong>Ver\u00f0st\u00fdring \u00fearf a\u00f0 dansa \u00ed takt vi\u00f0 \u00e1rst\u00ed\u00f0irnar. Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa fl\u00e6\u00f0andi ver\u00f0 sem byggja \u00e1 fyrri reynslu og greiningu \u00e1 g\u00f6gnum gistista\u00f0arins er h\u00e6gt a\u00f0 koma til m\u00f3ts vi\u00f0 sveiflur \u00e1 marka\u00f0i. \u00dea\u00f0 m\u00e1 \u00fev\u00ed segja a\u00f0 ver\u00f0st\u00fdring s\u00e9 virkilega st\u00f3r og mikilv\u00e6gur hlekkur \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 reka ar\u00f0b\u00e6ra gisti\u00fej\u00f3nustu. \u00deeir gistista\u00f0ir sem ver\u00f0st\u00fdra r\u00e9tt og vel, nota bl\u00f6ndu af gagnadrifnum sk\u00fdrslum og h\u00e6kka og l\u00e6kka ver\u00f0 eftir eftirspurn, uppskera \u00fev\u00ed meira. Mikilv\u00e6gur hlekkur \u00ed \u00feessu samspili er a\u00f0 hafa sk\u00fdrslur sem veita inns\u00fdn \u00ed samanbur\u00f0 \u00e1 milli \u00e1ra og \u00e1rst\u00ed\u00f0a hj\u00e1 \u00fe\u00ednum gistista\u00f0 en \u00fe\u00e6r hafa miki\u00f0 gildi \u00feegar kemur a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 leika s\u00e9r me\u00f0 t\u00f6lurnar og velja hi\u00f0 gullna ver\u00f0 sem er hagst\u00e6tt fyrir b\u00e6\u00f0i \u00feig og gestinn \u00feinn. Gott d\u00e6mi er um gistista\u00f0 sem tileinka\u00f0i s\u00e9r ofangreinda \u00fe\u00e6tti og komst a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feau voru a\u00f0 upplifa ni\u00f0ursveiflu \u00ed b\u00f3kunum \u00e1 milli \u00e1ra yfir veturinn og t\u00f3ku \u00e1 \u00fea\u00f0 brag\u00f0 a\u00f0 l\u00e6kka ver\u00f0i\u00f0 \u00fevert gegn \u00fev\u00ed sem \u00feau h\u00f6f\u00f0u \u00e6tla\u00f0 s\u00e9r e\u00f0a s\u00e9\u00f0 a\u00f0ra gera. Uppskeran var s\u00fa a\u00f0 \u00feau fengu fleiri b\u00f3kanir og lengri dv\u00f6l yfir veturinn og voru \u00fev\u00ed a\u00f0 horfa \u00e1 t\u00f6luvert fleiri gistin\u00e6tur en \u00e1\u00f0ur. Hlj\u00f3mar einfalt \u00ed e\u00f0li s\u00ednu en \u00fea\u00f0 getur veri\u00f0 erfitt a\u00f0 \u00e1tta sig \u00e1 st\u00f6\u00f0u m\u00e1la og breg\u00f0ast vi\u00f0 \u00e1n \u00feess a\u00f0 vera me\u00f0 r\u00e9ttu g\u00f6gnin og t\u00f3lin til \u00feess.&nbsp;<\/li>\n<\/ol>\n<ol start=\"2\" id=\"\">\n<li id=\"\"><strong id=\"\">Marka\u00f0ssetning:<\/strong> \u00c1 marka\u00f0i \u00fear sem mikil samkeppni er til sta\u00f0ar, eins og hj\u00e1 \u00feeim sem reka gisti\u00fej\u00f3nustu, \u00fe\u00e1 \u00fearf a\u00f0 beita herk\u00e6nsku og dj\u00fapri gagnavinnu til \u00feess a\u00f0 standa \u00fat \u00far \u00fev\u00f6gunni og bera af. \u00dea\u00f0 er \u00fev\u00ed mikilv\u00e6gt a\u00f0 \u00feekkja sitt ADR, RevPar, og a\u00f0ra mikilv\u00e6ga KPIS og nota \u00feau \u00ed marka\u00f0ssetninguna. \u00de\u00e1 getur \u00fe\u00fa fylgst me\u00f0 sveiflum, s\u00e9\u00f0 hven\u00e6r b\u00f3kanir byrja a\u00f0 taka d\u00fdfu og brug\u00f0ist vi\u00f0 me\u00f0 vi\u00f0eigandi marka\u00f0ssetningu \u00e1 r\u00e9ttum t\u00edma. T\u00edmasetning \u00e1 augl\u00fdsingum skiptir h\u00f6fu\u00f0m\u00e1li og \u00feekking \u00e1 \u00fe\u00ednum b\u00f3kunargluggum s\u00f6mulei\u00f0is. Sem d\u00e6mi \u00fe\u00e1 getur notkun myndefnis \u00ed marka\u00f0ssetningu skipt sk\u00f6pum fyrir \u00e1rangur hj\u00e1 gistist\u00f6\u00f0um \u00e1samt t\u00edmasetningu \u00e1 augl\u00fdsingum. \u00dea\u00f0 er v\u00e6nlegra til vinnings a\u00f0 flagga nor\u00f0urlj\u00f3samyndum \u00ed herfer\u00f0um me\u00f0 \u00fev\u00ed markmi\u00f0i a\u00f0 n\u00e6la \u00ed fer\u00f0amenn sem \u00e6tla s\u00e9r a\u00f0 heims\u00e6kja \u00cdsland a\u00f0 vetri til e\u00f0a \u00feegar hausti\u00f0 er handan vi\u00f0 horni\u00f0 me\u00f0 \u00f6ll s\u00edn nor\u00f0urlj\u00f3s. M\u00f6rg h\u00f3tel n\u00fdta s\u00e9r <a href=\"https:\/\/www.youtube.com\/watch?v=o-A6-i9F76s\" id=\"\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">sk\u00fdrslurnar okkar<\/a> til a\u00f0 sj\u00e1 \u00e1 hva\u00f0a t\u00edmabili fer a\u00f0 halla \u00e1 b\u00f3kanir hj\u00e1 \u00feeim. \u00deau rannsaka mynstri\u00f0 \u00e1 b\u00f3kunarglugga h\u00f3telsins og heg\u00f0un fer\u00f0amanna eftir t\u00edmabilum. G\u00f6gnin nota \u00feau til a\u00f0 st\u00fdra og t\u00edmasetja marka\u00f0ssetningu s\u00edna og hefur m\u00f6rgum \u00feeirra tekist, me\u00f0 afar g\u00f3\u00f0um \u00e1rangri, a\u00f0 halda jafnari st\u00f6\u00f0ugleika \u00e1 b\u00f3kunum yfir \u00e1ri\u00f0. Vi\u00f0 h\u00f6fum s\u00e9\u00f0 fj\u00f6lm\u00f6rg d\u00e6mi um h\u00f3tel sem l\u00e6ra a\u00f0 \u00feekkja g\u00f6gnin s\u00edn, vinna \u00far \u00feeim, vera s\u00fdnileg og n\u00e6la \u00ed fer\u00f0amenn \u00e1 h\u00e1rr\u00e9ttum t\u00edma me\u00f0 snjallri marka\u00f0ssetningu. \u00deetta samspil milli gagna og marka\u00f0ssetningu getur jafna\u00f0 \u00fat b\u00f3kunar sveiflur eftir \u00e1rst\u00ed\u00f0um.<\/li>\n<\/ol>\n<ol start=\"3\" id=\"\">\n<li id=\"\"><strong id=\"\">Gjafabr\u00e9f<\/strong>: Allir \u00ed fer\u00f0a\u00fej\u00f3nustu \u00e1 \u00cdslandi \u00feekkja tilfinninguna a\u00f0 sj\u00e1 dagatali\u00f0 sitt t\u00e6mast \u00feegar h\u00e1annat\u00edminn tekur enda \u00ed lok \u00e1g\u00fast. Fer\u00f0am\u00f6nnum f\u00e6kkar skyndilega og vi\u00f0skiptin dragast saman. Einmitt \u00fe\u00e1 er r\u00e9tti t\u00edminn til a\u00f0 horfa fram \u00e1 vi\u00f0 og herja \u00e1 innanlands marka\u00f0, \u00fear koma gjafabr\u00e9fin sterk inn og eru fr\u00e1b\u00e6r lei\u00f0 til \u00feess a\u00f0 auka s\u00f6lu og fj\u00f6lga b\u00f3kunum \u00e1 r\u00f3legri t\u00edmum. \u00cdslenskir fer\u00f0amenn hafa aldrei veri\u00f0 eins duglegir a\u00f0 n\u00fdta s\u00e9r gistista\u00f0i landsins og h\u00f3telgisting er hin fullkomna gj\u00f6f fyrir t\u00fdp\u00edska \u00edslendinginn sem \u00e1 \u201callt\u201d.&nbsp;\n<p>\u00dea\u00f0 er margt framundan \u00e1 svi\u00f0i gjafabr\u00e9fa, fyrirt\u00e6kin \u00ed landinu eru farin a\u00f0 huga a\u00f0 j\u00f3lagj\u00f6fum fyrir starfsf\u00f3lk og \u00e1\u00f0ur en vi\u00f0 vitum af detta inn afsl\u00e1ttardagar haustsins. Vi\u00f0 sj\u00e1um alltof oft a\u00f0 gistista\u00f0ir \u00e6tla a\u00f0 st\u00f6kkva \u00e1 lestina fimm m\u00edn\u00fatum fyrir st\u00e6rstu s\u00f6ludagana og n\u00e1 ekki a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt vegna \u00feess a\u00f0 undirb\u00faningur f\u00f3r of seint af sta\u00f0. Ekki vera me\u00f0 h\u00f3teli\u00f0 sem b\u00fdr til n\u00fdtt PDF \u00ed fl\u00fdti fyrir hvern sem hringir og bi\u00f0ur um gjafabr\u00e9f. Haf\u00f0u gjafabr\u00e9fin s\u00fdnileg, a\u00f0gengileg og au\u00f0keypt og minntu \u00e1 \u00feau me\u00f0 hj\u00e1lp augl\u00fdsinga, t\u00f6lvup\u00f3sta og samf\u00e9lagsmi\u00f0la. N\u00fa er r\u00e9tti t\u00edminn til \u00feess a\u00f0 taka gjafabr\u00e9fas\u00f6lu f\u00f6stum t\u00f6kum og leyfa s\u00f6lunni a\u00f0 tikka inn \u00ed sumar \u00feegar framundan eru br\u00fa\u00f0kaup og \u00fdmiss \u00f6nnur tilefni. Svo \u00feegar afsl\u00e1ttardagar haustsins skella \u00e1 \u00fe\u00e1 er \u00feinn rekstur undir \u00fea\u00f0 b\u00fainn og ver\u00f0ur v\u00e6nlegur kostur fyrir kaupendur.&nbsp;<\/li>\n<\/ol>\n<ol start=\"4\" id=\"\">\n<li id=\"\"><strong id=\"\">S\u00f6lur\u00e1sir:&nbsp; <\/strong>Margir rekendur gistista\u00f0a \u00feekkja \u00fea\u00f0 a\u00f0 eiga \u00ed h\u00e1lfger\u00f0u \u00e1star\/hatur sambandi vi\u00f0 st\u00f3ru s\u00f6lur\u00e1sirnar. \u00de\u00f3knanir eru gr\u00e1tlega h\u00e1ar en \u00e1 sama t\u00edma koma flestar b\u00f3kanir \u00ed gegnum \u00fe\u00e6r. A\u00f0 baki velgengni s\u00f6lur\u00e1sanna liggur au\u00f0vita\u00f0 mikil vinna og gr\u00ed\u00f0arleg marka\u00f0ssetning sem n\u00fdtist svo gistist\u00f6\u00f0unum. Sta\u00f0reyndin er s\u00fa a\u00f0 vi\u00f0 \u00feurfum \u00e1 \u00feeim a\u00f0 halda og \u00e6ttum \u00fev\u00ed a\u00f0 gera okkar allra besta til \u00feess a\u00f0 f\u00e1 sem mest \u00fat \u00far \u00feeirra \u00fej\u00f3nustu.&nbsp;\n<p>\u00dea\u00f0 er h\u00e6gt a\u00f0 auka s\u00fdnileika t\u00f6luvert me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vinna r\u00e9tt me\u00f0 s\u00f6lur\u00e1sir. Sko\u00f0i\u00f0 hvort \u00fei\u00f0 eigi\u00f0 heima \u00e1 fleiri r\u00e1sum og vandi\u00f0 til verka \u00feegar kemur a\u00f0 stillingum og framsetningu. Uppf\u00e6ri\u00f0 efni s\u00f6lur\u00e1sanna reglulega, passi\u00f0 upp \u00e1 a\u00f0 uppl\u00fdsingar s\u00e9u alltaf r\u00e9ttar, a\u00f0 allt efni eigi vi\u00f0 og ekki leyfa g\u00f6mlum \u00fareltum myndum e\u00f0a uppl\u00fdsingum a\u00f0 hanga inni. Uppf\u00e6ri\u00f0 efni eftir \u00e1rst\u00ed\u00f0um og \u00e1herslum \u00e1 markh\u00f3pinn hverju sinni. Til \u00feess a\u00f0 efla b\u00f3kanir yfir vetrart\u00edmann er mikilv\u00e6gt a\u00f0 sko\u00f0a hva\u00f0a herfer\u00f0um v\u00e6ri gott a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed. S\u00f6lur\u00e1sir ver\u00f0launa \u00feeim gistist\u00f6\u00f0um sem taka \u00fe\u00e1tt \u00ed tilbo\u00f0um \u00feeirra me\u00f0 auknum s\u00fdnileika. Veri\u00f0 dugleg a\u00f0 r\u00fdna \u00ed g\u00f6gnin og kynna ykkur hva\u00f0a tilbo\u00f0 hafa reynst best og hva\u00f0an flestar b\u00f3kanir koma. Herji\u00f0 \u00e1 \u00fea\u00f0 sem hefur s\u00fdnt sig a\u00f0 virkar fyrir ykkar gistista\u00f0 en sko\u00f0i\u00f0 l\u00edka \u00fea\u00f0 sem a\u00f0rir eru a\u00f0 gera og hva\u00f0 vir\u00f0ist vera a\u00f0 virka hverju sinni. Sl\u00edk vinna getur vissulega veri\u00f0 t\u00edmafrek en h\u00fan skilar \u00e1rangri. Ef ykkur \u00fei\u00f0 eru\u00f0 ein af \u00feeim sem fallast hendur vi\u00f0 tilhugsunina um a\u00f0 gr\u00faska \u00ed s\u00f6lur\u00e1sum og tilbo\u00f0um \u00fe\u00e1 er au\u00f0vita\u00f0 h\u00e6gt a\u00f0 leita a\u00f0sto\u00f0ar og f\u00e1 s\u00e9rfr\u00e6\u00f0inga \u00ed m\u00e1li\u00f0.&nbsp;&nbsp;&nbsp;&nbsp;<\/li>\n<\/ol>\n<ol start=\"5\" id=\"\">\n<li id=\"\"><strong id=\"\">Fer\u00f0askrifstofur: <\/strong>Efli\u00f0 til og vi\u00f0haldi\u00f0 g\u00f3\u00f0um vi\u00f0skiptasamb\u00f6ndum vi\u00f0 fer\u00f0askrifstofur. \u00dea\u00f0 eru margir kostir sem fylgja b\u00f3kunum \u00ed gegnum fer\u00f0askrifstofur. \u00de\u00e6r b\u00f3ka yfirleitt me\u00f0 mj\u00f6g g\u00f3\u00f0um fyrirvara og r\u00e9tt uppsettir og sk\u00fdrir afb\u00f3kunarskilm\u00e1lar veita gott svigr\u00fam til breytinga. \u00dear a\u00f0 auki taka fer\u00f0askrifstofur a\u00f0 sta\u00f0aldri minni \u00fe\u00f3knun en s\u00f6lur\u00e1sirnar og ef r\u00e9tt er haldi\u00f0 \u00e1 sp\u00f6\u00f0unum hva\u00f0 var\u00f0ar ver\u00f0st\u00fdringu, er h\u00e6gt a\u00f0 f\u00e1 meira fyrir hverja gistin\u00f3tt \u00ed gegnum fer\u00f0askrifstofur heldur en s\u00f6lur\u00e1sir.&nbsp;\n<p>\u00cd gegnum fer\u00f0askrifstofur er h\u00e6gt a\u00f0 n\u00e1 til h\u00f3pa sem s\u00f6lur\u00e1sir og heimas\u00ed\u00f0a n\u00e1 s\u00ed\u00f0ur til. \u00dear f\u00e1i\u00f0 \u00fei\u00f0 annars konar gesti en ekki s\u00ed\u00f0ur ver\u00f0m\u00e6ta og mikilv\u00e6ga. Me\u00f0 fer\u00f0askrifstofum koma gestir sem eru oftast l\u00f6ngu b\u00fanir a\u00f0 grei\u00f0a fyrir fer\u00f0ina og tilb\u00fanir til \u00feess a\u00f0 n\u00fdta aurinn \u00ed a\u00f0 b\u00e6ta vi\u00f0 upplifunina me\u00f0 mat og drykk og \u00f6\u00f0rum v\u00f6rum \u00e1 sta\u00f0num. Einnig hefur \u00fea\u00f0 s\u00fdnt sig a\u00f0 h\u00f3par sem b\u00f3ka \u00ed gegnum fer\u00f0askrifstofur dvelja a\u00f0 sta\u00f0aldri lengur \u00e1 hverjum sta\u00f0 en a\u00f0rir gestir og eins og vi\u00f0 vitum \u00fe\u00e1 er mikill hagna\u00f0ur \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e1 gesti sem dvelja fleiri en eina n\u00f3tt.<\/p>\n<p>\u00dei\u00f0 geti\u00f0 fj\u00f6lga\u00f0 samst\u00f6rfum vi\u00f0 fer\u00f0askrifstofur til muna me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 nota Travia sem er \u00ed raun beintenging fer\u00f0askrifstofa vi\u00f0 h\u00f3tel og eykur s\u00fdnileika og einfaldar alla samvinnu vi\u00f0 fer\u00f0askrifstofur. Mikilv\u00e6gt er a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a \u00e1rst\u00ed\u00f0abundna ver\u00f0lista og vinna \u00fe\u00e1 me\u00f0 g\u00f3\u00f0um fyrirvara svo a\u00f0 \u00feinn gistista\u00f0ur komi til greina \u00feegar fer\u00f0askrifstofa skipuleggur fram \u00ed t\u00edmann.&nbsp;<\/li>\n<\/ol>\n<h2 id=\"\"><strong id=\"\">Samantekt<\/strong><\/h2>\n<p id=\"\">\u00deegar \u00f6llu er \u00e1 botninn er hvolft er mikilv\u00e6gt a\u00f0 skilja sveiflur \u00ed b\u00f3kunum \u00e1 milli \u00e1rst\u00ed\u00f0a og hvernig skal breg\u00f0ast vi\u00f0 \u00feeim. Punktarnir h\u00e9r a\u00f0 ofan eru g\u00f3\u00f0 byrjun til a\u00f0 \u00e1tta sig og hafa \u00e1hrif \u00e1 sveiflukennt fl\u00e6\u00f0i b\u00f3kana \u00e1 \u00fe\u00ednum gistista\u00f0 eftir \u00e1rst\u00ed\u00f0um.&nbsp;<\/p>\n<p id=\"\">\u00dea\u00f0 er \u00fev\u00ed mikilv\u00e6gt a\u00f0 n\u00fdta s\u00e9r r\u00e9ttu t\u00f3lin, eins og rekstarsk\u00fdrslur Godo og innlei\u00f0a markvissar a\u00f0ger\u00f0ir til a\u00f0 draga verulega \u00far b\u00f3kunarsveiflum og vi\u00f0halda g\u00f3\u00f0u og jafnara n\u00fdtingarhlutfalli allt \u00e1ri\u00f0. Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa \u00f6fluga ver\u00f0st\u00fdringu er h\u00e6gt a\u00f0 f\u00e1 meira fyrir minna og la\u00f0a a\u00f0 fleiri gesti \u00e1 \u00f6llum t\u00edmabilum \u00e1rsins. Ver\u00f0st\u00fdring ver\u00f0ur enn \u00f6flugra vopn ef h\u00fan er unnin samhli\u00f0a markvissri marka\u00f0ssetningu. \u00de\u00e1 er h\u00e6gt a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a upp \u00e1 \u00e1rst\u00ed\u00f0abundna pakka til a\u00f0 koma til m\u00f3ts vi\u00f0 fj\u00f6lbreyttan h\u00f3p gesta. Til a\u00f0 b\u00e6ta ofan \u00e1 \u00feetta er h\u00e6gt a\u00f0 setja p\u00fa\u00f0ur \u00ed a\u00f0 selja fyrirt\u00e6kjum og einstaklingum gjafabr\u00e9f til a\u00f0 fylla upp \u00ed almennt r\u00f3legri t\u00edmabil \u00e1rsins. Ekki m\u00e1 gleyma \u00fev\u00ed a\u00f0 samstarf vi\u00f0 fer\u00f0askrifstofur spilar st\u00f3ra rullu \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e1 fleiri h\u00f3pab\u00f3kanir. \u00dear m\u00e1 spara s\u00e9r alv\u00f6ru fj\u00e1rh\u00e6\u00f0ir \u00ed \u00fe\u00f3knanir og f\u00e1 gesti sem b\u00e6\u00f0i dvelja lengur og ey\u00f0a meira \u00feegar komi\u00f0 er \u00e1 sta\u00f0inn.<\/p>\n<p id=\"\">Me\u00f0 \u00feessar a\u00f0fer\u00f0ir a\u00f0 lei\u00f0arlj\u00f3si er h\u00e6gt a\u00f0 sauma saman rekstur sem \u00fer\u00edfst vel allan \u00e1rsins hring og vinnur statt og st\u00f6\u00f0ugt a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00e1marka tekjur gistista\u00f0arins.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fer\u00f0a\u00fej\u00f3nusta \u00e1 \u00cdslandi er \u00e1rst\u00ed\u00f0abundin og miklar breytingar m\u00e1 sj\u00e1 \u00e1 fj\u00f6lda b\u00f3kana, b\u00f3kunarhra\u00f0a, lengd dvalar og fleira \u00e1 milli sumars og veturs. \u00deessu fylgja miklar sveiflur \u00ed ver\u00f0um, starfsmannahaldi og \u00f6\u00f0ru.&nbsp; \u00dea\u00f0 getur skipt sk\u00f6pum a\u00f0 \u00e1tta sig \u00e1 \u00feessum sveiflum \u00e1 marka\u00f0num, skilja \u00fe\u00e6r og greina hva\u00f0a \u00e1hrif \u00fe\u00e6r hafa \u00e1 \u00feinn gistista\u00f0. [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":1728,"comment_status":"closed","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"iawp_total_views":6,"footnotes":""},"categories":[65],"tags":[],"class_list":["post-1657","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-icelandic"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/godo.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1657","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/godo.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/godo.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/godo.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/godo.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1657"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/godo.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1657\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1988,"href":"https:\/\/godo.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1657\/revisions\/1988"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/godo.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/1728"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/godo.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1657"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/godo.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1657"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/godo.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1657"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}