MENU

Greinar

Gátlisti fyrir hótel vegna sólmyrkva

Sjaldgæfir viðburðir á borð við almyrkva á sólu skapa einstakt tækifæri fyrir hótel. Eftirspurn eykst verulega, bókanir berast fyrr en ella, væntingar gesta verða meiri og herbergisverð nær oft hæstu hæðum. Slíkir viðburðir geta skilað umtalsverðum viðbótartekjum, en á sama tíma aukast kröfur til bókunarkerfa, samskipta við gesti, greiðslulausna, verðstýringar og daglegs rekstrar.

Þessi gátlisti hjálpar hótelum að undirbúa sig fyrir stórviðburði og önnur tímabil með mikilli eftirspurn, svo aukin aðsókn skili sér í meiri arðsemi og framúrskarandi upplifun gesta í stað rekstrarlegra áskorana.

Nýting og verðstefna

  • Greindu hvenær eftirspurn mun ná hámarki með því að nýta söguleg gögn og markaðsgreiningar, helst með allt að árs fyrirvara.
  • Mótaðu sveigjanlega verðstefnu sem miðar að því að hámarka tekjur.
  • Fylgstu reglulega með bókunarhraða og aðlagaðu verð út frá nýtingu, samkeppni og þróun eftirspurnar.
  • Nýttu öflugt tekjustýringarkerfi sem sér um stöðuga verðbestun og bregst hratt við breytingum á markaðnum.
  • Dreifðu bókunum á fjölbreyttar sölurásir til að draga úr áhættu og hámarka tekjur bæði í beinni sölu og í gegnum OTA-söluaðila.
  • Farðu yfir lágmarksdvöl, afbókunarskilmála og bókunartakmarkanir til að tryggja að þau styðji við markmið hótelsins á álagstímum.

Greiðslur og innheimta

  • Tryggðu greiðslur með 3DS auðkenningu á greiðslukortum gesta til að draga úr hættu á endurkröfum (chargebacks).
  • Gakktu úr skugga um að Virtual Cards frá OTA-aðilum séu innleyst um leið og þau verða virk, eða að millifærslur séu mótteknar samkvæmt samningi.
  • Innheimtu greiðslur eins fljótt og auðið er eftir að sýndarkort virkjast.
  • Tryggðu að aðstoð sé tiltæk allan sólarhringinn ef upp kemur ágreiningur um greiðslur eða endurkröfur.
  • Framkvæmdu reglulegt gæðaeftirlit með bókunum til að tryggja að engar greiðslur eða bókanir fari fram hjá þér.

Bókanir og samskipti við gesti

  • Haltu utan um biðlista fyrir uppseldar dagsetningar til þess að bregðast við afbókunum.
  • Undirbúðu aukinn fjölda fyrirspurna með því að sjálfvirknivæða algeng samskipti við gesti með Smart Guest Communication.
  • Endurskoðaðu verklag varðandi hópbókanir og úthlutun herbergja.
  • Sjálfvirknivæddu staðfestingar, komuleiðbeiningar, algengar spurningar og samskipti fyrir komu með Smart Guest Communication, þannig að gestir fái hraða, persónulega og samræmda þjónustu.

Upplifun gesta

  • Veittu gestum upplýsingar um bestu útsýnisstaði, dagskrá viðburða og annað sem tengist sólmyrkvanum.
  • Skapaðu eftirminnilega upplifun með skemmtilegu sólmyrkvaþema í móttöku eða á herbergjum.
  • Íhugaðu litlar móttökugjafir, svo sem sólmyrkvagleraugu, staðbundið góðgæti eða persónulegt kort sem býður gestinn velkominn.
  • Tryggðu að starfsfólk þekki tímasetningar sólmyrkvans og geti leiðbeint gestum um viðburði og afþreyingu á svæðinu.
  • Hafðu neyðarsímanúmer eða tengilið á staðnum sem gestir geta náð í ef eitthvað kemur upp á. Á tímabilum þar sem verð er hátt eru væntingar gesta einnig meiri.
  • Vertu tilbúin(n) að verða við sanngjörnum óskum um snemmbúna innritun þegar aðstæður leyfa, sérstaklega fyrir gesti sem koma með næturflugi.
  • Stýrðu væntingum gesta með góðum fyrirvara. Deildu veðurspám og útskýrðu að jafnvel þótt ský dragi úr skyggni geti sjálf upplifunin af almyrkvanum og stemningin í kring gert augnablikið einstakt.

Að endingu

Almyrkvi á sólu er miklu meira en tímabundin aukning í nýtingu. Hann gefur hótelum einstakt tækifæri til að auka tekjur, sýna fram á framúrskarandi þjónustu og skapa upplifun sem leiðir til jákvæðra umsagna og endurkomu gesta.

Þau hótel sem hefja undirbúning tímanlega eru best í stakk búin til að nýta aukna eftirspurn án þess að það bitni á rekstrinum. Með markvissri tekjustýringu, sjálfvirknivæðingu endurtekinna verkefna og öflugum samskiptum við gesti er hægt að breyta einstökum viðburði í varanlegt virði fyrir reksturinn.

Ef þú vilt fá frekari stuðning þá mælum við með þjónustuleið Godo, Godo Vöxtur. Í þessari þjónustuleið er boðið upp á aðstoð við tekjustýringu, dreifingarstefnu, greiðslulausnir og ráðgjöf um rekstur, svo hótelið geti hámarkað tekjur á sama tíma og þjónustan helst framúrskarandi.