Um okkur
Godo hugbúnaðarhús var stofnað árið 2012. Félagið sérhæfir sig í hugbúnaðarlausnum tengdum ferðaþjónustu. Við bjóðum upp á mikið úrval hugbúnaðarlausna og þjónustuleiða fyrir samstarfsaðila okkar, ásamt fjölda sérlausna.
Við þjónustum hátt í 2000 hótel og gististaði í 20 löndum ásamt hundruðum ferðaskrifstofa um allan heim.
Höfuðstöðvar Godo eru í Reykjavík en einnig erum við með starfstöðvar í Serbíu, Þýskalandi og Norður Makedóníu.
Okkar helsta markmið er að vera fremst á sviði nýsköpunar og tækni með framleiðslu á hágæða lausnum og þjónustu fyrir okkar samstarfsaðila.